Aldraðir félagsmenn
Hópur aldraðra félagsmanna hittast alltaf á fimmtudögum í félagsmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti, þar sem þeir geta stundað ýmis konar tómstundastarf. Einu sinni í mánuði hittist hópurinn í Grensáskirkju með Miyako presti heyrnarlausra og eiga þar saman skemmtilega stund og borða saman. Einnig borða þau saman á þriðjudögum til skiptis á Vitatorgi og Hrafnistu DAS.
Teymisnefnd aldraðra skipa:
Vilhjálmur G. Vilhjálmsson, formaður
Anna Jóna Lárusdóttir
Þórdís Þórðardóttir
Tadeusz Jón Baran
Sigríður Borg Harðardóttir
Heiðdís Dögg Eiríksdóttir