Samtök heyrnarlausra lesbía og homma, H.L.D.I.
Samtök heyrnarlausra lesbía og homma, H.L.D.I voru stofnuð 13. ágúst 1994 og er sjálfstæður félagsskapur með það að markmiði að standa vörð um réttindi og baráttumál samkynhneigðra og tvíkynhneigða heyrnarlausra.
Samtökin leitast við að halda uppi félagslífi fyrir hópinn að svo miklu leyti sem aðstæður leyfa því að samtökin njóta engra tekna og innheimta ekki félagsgjöld.
Meðlimir í samtökunum hittast einu sinni í mánuði á veturnar og gerum eitthvað skemmtilegt saman, svo sem borða saman í hádeginu, sumarbústaðarferð einu sinni á ári og margt fleira skemmtilegt. Ef þú hefur áhuga á að vera með okkur, vinsamlegast láttu okkur vita.
Stjórn HLDI
Þórhallur Arnarson, formaður og gjaldkeri
Gunnar Björn Jónsson, ritari
Guðbjörn Sigurgeirsson, meðstjórnandi