Puttalingar, Æskulýðsfélag heyrnarlausra
Puttalingar var stofnað 23. apríl 2002. Puttalingar starfa sem deild innan Félags heyrnarlausra og lúta stjórn félagsins. Puttalingar hafa þó sína eigin stjórn, sem heldur utan um starfsemi félagsins og er ábyrg fyrir henni. Stjórn Puttalinga (3 aðilar) vinnur sem sjálfboðaliðar á öllum þeim atburðum sem félagið stendur fyrir sem og búa til dagskrá og fjárhagsáætlun fyrir hvert starfsár. Fjárhagsleg ábyrgð er þó Félags heyrnarlausra og eru Puttalingar ábyrgir fjárhagslega gagnvart félaginu.
Helstu verkefni Puttalinga eru félagsstarf fyrir aldurshópinn 13-30 ára, að halda úti skipulagðri dagskrá fyrir félagsmenn sem og halda námskeið og fræðslukvöld.
Puttalingar hafa ekki sér lög en hafa ákveðin markmið að leiðarljósi. Helstu markmið þeirra eru:
Rjúfa félagslega einangrun ungs fólks með öflugu félagslífi og fræðslu.
Byggja unga heyrnarlausa upp félagslega.
Vegna fámenns hóps heyrnarlausra á Íslandi er mikilvægt að halda tengslum við önnur lönd og því er uppbygging tengslanets eitt af markmiðunum
Framtíðarverkefni Puttalinga er að efla félagsstarf heyrnarlausra ungmenna á Íslandi, rjúfa einangrun þeirra og efla alþjóðlegt samstarf milli Puttalinga og annarra ungmennafélaga heyrnarlausra víðs vegar um heim, þó fyrst með mestu áhersluna á Evrópu.
Stjórn Puttalinga:
Hanna Kristín Jónsdóttir, formaður
Árni Ingi Jóhannesson, ritari
Gunnar Björn Jónsson, gjaldkeri
Heimasíða Puttalinga