Þú ert hér

Menntunarsjóður Félags heyrnarlausra

Menntunarsjóður Félags heyrnarlausra var stofnaður árið 1999 af Félagi heyrnarlausra með fjárframlagi frá menntamálaráðuneytinu og ýmissa fyrirtækja.

Tilgangur sjóðsins er að stuðla að menntun heyrnarlausra, daufblindra og heyrnarskertra, formlegrar og óformlegrar og einnig starfsþjálfunar.

Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að viðkomandi sé fullgildur félagsmaður í Félagi heyrnarlausra.

Hver félagi skal að hámarki fá úthlutað styrk einu sinni á ári.

Sjóðurinn auglýsir eftir umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum með ítarlegum upplýsingum um umsækjendur og væntanlegt nám og er umsóknafrestur til 1. ágúst og 1. desember ár hvert.

--------

Styrktarsjóður Bjargar Símonardóttur

Tilgangur sjóðsins er að styrkja táknmálstúlkun eða textun á íslensku menningarefni hvort heldur er í sjónvarpi, kvikmyndahúsum eða í leikhúsum.

Rétt til að sækja um styrk hafa framleiðendur og íslenskir rétthafar sjónvarpsefnis, kvikmynda og fræðsluefnis á myndböndum og einnig leikhús. Þeir umsækjendur skulu að öllu jöfnu sitja fyrir sem ekki eiga kost á öðrum styrkjum.

Umsóknum um styrki úr sjóðnum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum frá sjóðsstjórn, ásamt ítarlegum upplýsingum um verkefnið og umsækjendur.

Umsóknarfrestur er til 1. ágúst og 1. desember ár hvert.

Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Sjóðir
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is