Þú ert hér

SKIPULAGSSKRÁ
fyrir sjóð Bjargar Símonardóttur


1. grein.

Sjóðurinn heitir sjóður Bjargar Símonardóttur. Hann er stofnaður af Björgu Símnoardóttur með fjárframlagi að upphæð 8.857.119 krónur. Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

2. grein.

Stofnfé sjóðsins er 4.500.000,- krónur. Stofnfé skal ekki skerða, og fyrstu fimm árin skal helmingur vaxta og verðbóta lagður við höfuðstólinn.

3. grein.

Sjóðurinn tekur við framlögum; gjöfum og áheitum, og skal um slík framlög fara svo sem segir í 2. grein.

4. grein.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja táknmálstúlkun og textun á íslensku menningarefni hvort sem er í sjónvarpi, kvikmyndahúsum eða í leikhúsum. Úthlutun fer fram tvisvar á ári, 15. janúar og 15. september. Stjórn sjóðsins ber að auglýsa umsóknarfrest um styrki 1. nóvember og 1. júlí ár hvert. Umsóknir skulu hafa borist sjóðstjórn fyrir 1. ágúst og 1. desember.

5. grein.

Stjórn sjóðsins skal vera kosin á aðalfundi Félags heyrnarlausra og skulu stjornarmenn vera 3. 2 stjórnarmanna skulu vera fullgildir félagsmenn í Félag heyrnarlausra en Félag heyrnarlausra tilnefnir einn utan þess. Stjórnin tekur ákvarðanir varðandi styrki og ráðstöfun tekna.

6. grein.

Félag heyrnarlausra annast um varðveislu sjóðsins og reikningshald. Endurskoðun og birting reikninga er i höndum löggilts endurskoðenda.

7. grein.

Skipulagsskrá þessari verður ekki breytt nema a. m. k. tveir stjórnarmenn samþykki breytinguna.

8. grein.

Verði sjóðurinn lagður niður skulu eignir hans renna til svipaðrar starfsemi samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.

9. grein.

Leita skal staðfestingar dómsmálaráðuneytisins á skipulagsskrá þessari.

Björg Símonardóttir


Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 14. ágúst 2003.

F. h. r.

Hjalti Zóphóníasson
___________________
Bryndís Helgadóttir.

Bjargarsjóður:

Úthlutunarreglur

Reglur um úthlutun styrkja til framleiðenda, rétthafa og leikhúsa
vegna textasetningar á leikritum, kvikmyndum, fræðslu- og heimildarmyndum eða túlkunar á leikritum

  1. Tilgangur styrkjanna er samkvæmt skipulagsskrá Sjóðs Bjargar Símonardóttur að styrkja textun eða túlkun á leikritum, kvikmyndum, fræðslu- og heimildarmyndum.
  2. Rétt til að sækja um styrk hafa:
    * Framleiðendur og rétthafar íslensks sjónvarpsefnis, kvikmynda og fræðsluefnis á myndböndum
    * Leikhús
  3. Styrki er heimilt að nýta til að greiða laun og annan kostnað við textun eða túlkun
  4. Með umsókn þarf að fylgja: Greinargóð lýsing á verkefninu. Til hvaða verkefna sótt er um styrk og hvaða upphæð. Tímasetningar Ítarleg fjárhagsáætlun Upplýsingar um aðstandendur Verkáætlun Hvort umsækjandi hafi aðra styrki eða fái laun fyrir umrætt verk eða hafi sótt um aðra styrki. Hvaða líkur eru á að myndin verði sýnd í sjónvarpi. Hversu margar túlkaðar sýningar eru ráðgerðar á leikritinu.
  5. Þeir umsækjendur skulu að öðru jöfnu sitja fyrir sem ekki eiga kost á öðrum styrkjum fyrir verkið.
  6. Sjóður og styrkþegi gera með sér sérstakan samning sem meðal annars kveður á um fyrirkomulag greiðslu, lokaskýrslu og eftirfylgni.
  7. Styrkþegi skal skila skriflegri lokaskýrslu um framkvæmd og árangur verksins áður en styrkur verður greiddur út. Að öðru leyti ber styrkþega að veita stjórn sjóðsins upplýsingar um framkvæmd verkefnisins þegar og ef eftir því er leitað.
  8. Umsóknir þurfa að vera á eyðublöðum frá Sjóðsstjórn og póststimplaðar eigi síðar en 1. ágúst eða 1. desember.

Reglur um skilagrein vegna styrkja

Eyðublöð vegna styrkja úr Sjóði Bjargar Símonardóttur má finna hér fyrir neðan.

Vilyrði fyrir styrk úr Sjóði Bjargar Símonardóttur er gilt í eitt ár eftir úthlutum. Styrkur verður greiddur eftir að lokaskýrslu um ráðstöfun fjárins hefur verið skilað til sjóðsstjórnar.

(Samþykkt á fundi stjórnar 25.10.2005)

Umsóknareyðublað Bjargarsjóðs

Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Sjóðir or Bjargarsjóður
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is