SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Menntunarsjóð Félags heyrnarlausra nr. 257/1999
1. grein
Sjóðurinn heitir Menntunarsjóður Félags heyrnarlausra. Hann er stofnaður af Félagi heyrnarlausra með fjárframlagi menntamálaráðuneytis að upphæð kr. 200.000 ásamt framlagi ýmissa fyrirtækja að upphæð kr. 425.000.
2. grein
Stofnfé sjóðsins er kr. 625.000. Stofnfé má ekki skerða, og fyrstu fimm árin skal helmingur vaxta og verðbóta lagður við höfuðstólinn. Að auki tekur sjóðurinn við framlögum; gjöfum og áheitum til eflingar starfsemi hans.
3. grein
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að menntun heyrnarlausra, daufblindra og heyrnarskertra, formlegrar og óformlegrar og einnig starfsþjálfunar. Úthlutun úr sjóðnum skal vera tvisvar á ári 15. janúar og 15. september.
Stjórn sjóðsins ber að auglýsa umsóknarfrest um styrki í síðasta lagi 1. nóvember og 1. júlí ár hvert og skulu umsóknir hafa borist sjóðstjórn fyrir 1. ágúst og 1. desember. Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að viðkomandi sé fullgildur félagsmaður í Félagi heyrnarlausra.
4. grein
Stjórn sjóðsins skipa þrír menn. Einn þeirra skal tilnefndur til tveggja ára í senn af Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Tveir stjórnarmanna skulu kosnir til tveggja ára í senn á aðalfundi Félags heyrnarlausra og skulu þeir vera fullgildir félagsmenn í Félagi heyrnarlausra.
Stjórnin tekur allar ákvarðanir varðandi styrki og ráðstöfun tekna.
5. grein
Félag heyrnarlausra annast varðveislu sjóðsins, reikningshald og löggilta endurskoðun á reikningum sjóðsins.
6. grein
Skipulagsskrá þessari verður ekki breytt nema a. m. k. tveir stjórnarmenn samþykki breytinguna.
7. grein
Verði sjóðurinn lagður niður skulu eignir hans renna til svipaðrar starfsemi samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.
8. grein
Leita skal staðfestingar dómsmálaráðuneytisins á skipulagsskrá þessari.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 7. apríl 1999.
F. h. r.
Björn Friðfinnsson.
___________________
Fanney Óskarsdóttir.
Úthlutunarreglur fyrir Menntunarsjóð Félags heyrnarlausra
- Við hverja úthlutun greiðist einn styrkur að upphæð 75.000 krónur til nema í fullu námi við erlendan skóla.
- Við hverja úthlutun greiðast tveir styrkir að upphæð 35.000 hvor til nema í fullu námi við innlendan skóla.
- Við hverja úthlutun greiðast tveir styrkir að upphæð 25.000 hvor til félagsmanns sem sækir námskeið yfir 40 stundum. Þessir styrkir greiðast út að námskeiði loknu að framlögðu vottorði frá námskeiðshaldara.
- Við hverja úthlutun greiðast fjórir styrkir að upphæð 10.000 krónur hver til félagsmanns sem sækir námskeið allt að 40 stundum. Þessir styrkir greiðast út að námskeiði loknu að framlögðu vottorði frá námskeiðshaldara.
- Hver félagi skal að hámarki fá úthlutað styrk einu sinni á ári.
- Berist engar umsóknir í tilteknum flokki eða færri en sem nemur fjölda styrkja fellur sá styrkur niður en flyst ekki yfir að næstu úthlutun.
(Samþykkt á fundi stjórnar 09-02-01)
Umsóknareyðublað menntunarsjóðs