Líf og list án landamæra
Ráðstefnan er skipulögð í samráði við Norrænu nefndina um málefni fólks með fötlun, menntamálaráðuneytið, og með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar. Ráðstefnan er hluti af dagskrá formennskuáætlunar Íslands, sem gegnir formennsku í norrænu ráðherranefndinni árið 2009.
Á ráðstefnunni verður m.a fjallað um:
- Sýnileika og kynningu fólks með fötlun í fjölmiðlum og menningu í norrænum löndum.
- Mikilvægi 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun (Þátttaka í menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi).
- Gildi Listar án landamæra og annarrar menningarstarfsemi sem fyrirmynda fyrir grasrótar-hreyfingar og þátttöku fólks með fötlun í listum og menningarstarfi, sem hægt væri að nýta svæðisbundið eða á landsvísu í öðrum norrænum löndum.
Ráðstefnan er opin almenningi og allir eru velkomnir en ætti sérstaklega að höfða til samtaka fatlaðra á Norðurlöndunum, fræðimanna, þeirra er vinna að málefnum fólks með fötlun og
stjórnenda á sviði lista- og menningarmála.
Ekkert þátttökugjald er á ráðstefnunni, en þátttakendur þurfa að skrá sig. Það má gera með því að slá inn þessa slóð hér fyrir neðan. Í skráningunni má einnig skrá sig í hádegismat og á leiksýningu Dissimilis í Borgarleikhúsinu.
Hægt er að skrá sig hér.
Einnig er hægt að nálgast dagskrá ráðstefnunnar hér.