MP banki styrkir Félag heyrnarlausra
Félag heyrnarlausra sem sinnir mikilvægu starfi fyrir stóran hóp heyrnarlausra á öllum aldri, á sér langa sögu og fyrir félaginu liggja stór verkefni framundan þegar félagið heldur upp á 50 ára afmæli sitt í febrúar 2010. Styrknum fylgir hvatning til félagsins og liðsstyrkur til að sinna af krafti félagsstarfi og fræðslu fyrir heyrnarlausa á öllum aldri á afmælisárinu.
Félag heyrnarlausra veitti styrknum viðtöku í félagsheimili sínu og þakkaði MP banka stuðninginn sem kemur sér einkar vel í því víðtæka starfi sem félagið heldur um.


Fréttin er á táknmáli