Þú ert hér

Fyrirspurn frá Félagi heyrnarlausra til RÚV

Fyrirspurn FH:

Heill og sæll Óðinn og gleðilegt árið.

Við hjá Félagi heyrnarlausra viljum senda fyrirspurn til ykkar á fréttastofunni varðandi beina útsendingu frá blaðamannafundi með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni í gær. Hefði ekki verið rétt að kalla eftir túlki á þennan viðburð sem þótti stórviðburður í fréttum? Spurningin er einnig hver skuli gerður ábyrgur að kalla til túlka og meta við hverju sinni hvenær fréttaefni/útsendingar skuli túlkaðar. Við hjá Félagi heyrnarlausra köllum eftir því að sjónvarpstúlkun við ýmsa viðburði verði komið í þannig horf að aðgengið að slíkri þjónustu sé skýr.

Með von um jákvæð viðbrögð.


Svar RÚV:

Sæll Daði

Engar skýrar vinnureglur liggja fyrir um það hvenær skuli kallaður til táknmálstúlkur. Framkvæmdin hefur hinsvegar verið í höndum fréttastjóra eða fulltrúa hans. Okkur láðist að gera þetta í gær. Það gæti bent til þess að betra væri að einhver annar en fréttastjórinn ætti að taka ákvörðun um þessa þjónustu. Ég skal taka málið upp við aðra í yfirstjórninni og ræða framkvæmdina. Þú mátt gjarnan hafa samband aftur og minna á málið.

Með áramótakveðju

Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV


Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Skýrslur or Lesa
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is