Verkefni Félags heyrnarlausra á næstunni
Helstu málefnin eru þessi :
- Vinna framkvæmdanefndar um málefni heyrnarlausra: Verklok áætluð um miðjan júní. Mjög breiður málefnagrundvöllur kemur þar fyrir. Hrönn Pétursdóttir er verkefnastjóri framkvæmdanefndar og Heiðdís Dögg Eiríksdóttir er fulltrúi Félags heyrnarlausra í nefndinni og Guðmundur Ingason varafulltrúi. Þá verður stofnaður vinnuhópur í kringum verkefnastjóra FH.
- Fundur Símans og Póst og fjarskiptastofnunar um réttindi heyrnarlausra á túlkun og þjónustu.
- Textunarmál í sjónvarpi. Málin verða unnin með breiðari fylkingu hagsmunahópa. Textunarmál í samvinnu FH, Bjargarsjóðs og framleiðenda á íslenskum þáttarröðum heldur áfram sbr. textun á Bjarnfreðarsyni sem sýnd verður textuð í kvikmyndahúsum, Dag- og Fangavaktin, Ástríður og Réttur.
- Skoðun og athugasemdir á samningi SÞ. Um réttindi fatlaðra.
- Endurnýjun á tölvukerfi Félags heyrnarlausra.
- Athugun með stækkun á félagsaðstöðu Félags heyrnarlausra
- Útgáfa DVD disks með videoviðtölum við eldri döff í tengslum við bókaútgáfu og eldra efni.
- Efla barnastarf litlu putta í Félagi heyrnarlausra.