Þú ert hér

Ráðstefna um fötlunarrannsóknir: Mannréttindi og sjálfstætt líf

Föstudaginn 12. mars 2010
, kl. 9.00-17.00, bjóða Félag um fötlunarrannsóknir og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands til ráðstefnu á Grand hóteli. Ráðstefnan ber yfirskriftina Mannréttindi og sjálfstætt líf.

Nánari upplýsingar veita Hanna Björg Sigurjónsdóttir (hbs@hi.is) og Kristín Björnsdóttir (krb4@hi.is)

Dagskrá ráðstefnunnar

8:45        Skráning
09:10      Ávarp: Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra
09.20      Setning: Rannveig Traustadóttir, formaður Félags um fötlunarrannsóknir
09:30      Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks og bannið gegn mismunun
                Oddný Mjöll Arnardóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík
10:20      Kaffihlé
10:45      Samningur SÞ, réttur til fjölskyldulífs og aðgengi að foreldrahlutverkinu
                Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, Helga Baldvins og Bjargardóttir þroskaþjálfi og 
                lögfræðingur og Aðalbjörg Gunnarsdóttir háskólanemi
11:15      Samningur SÞ og aðgengi fyrir alla
                Snæfríður Þóra Egilson prófessor við Háskólann á Akureyri og Eyrún Björk Pétursdóttir iðjuþjálfi
11:45      Umræður með fyrirlesurum morgunsins í pallborði
12:00      Hádegishlé
13:00      Stuðningur við heimili og daglegt líf
                Dóra S. Bjarnason prófessor við Háskóla Íslands
13.30      Sjálfstætt líf - helstu hornsteinar
                Vilborg Jóhannsdóttir lektor við Háskóla Íslands og Freyja Haraldsdóttir háskólanemi
14.15      Sögulegt tækifæri: Uppgjör við fortíð – hvert stefnir í framtíð?
                Rannveig Traustadóttir prófessor við Háskóla Íslands
14:45      Umræður með fyrirlesurum eftirmiðdagsins í pallborði
15.15      Kaffihlé
15.30      Aðalfundur Félags um fötlunarrannsóknir
                
Dagskrá verður dreift í upphafi aðalfundar.
                 Fundarstjóri: Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands
17:00      Ráðstefnulok


Ráðstefnustjóri: Ragnar Gunnar Þórhallsson formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra.


Ráðstefnugjald: Almennt ráðstefnugjald er kr. 5000. Nemendur og lífeyrisþegar greiða kr. 2000.


Innifalið í ráðstefnugjaldi eru ráðstefnugögn, morgunkaffi og síðdegishressing.


Síðasti skráningardagur er 9. mars.


Táknmálstúlkun: Þeir sem þurfa táknmálstúlkun eru beðnir að láta vita með viku fyrirvara (í síðasta lagi 5. mars).


Skráning á ráðstefnuna.



Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Skýrslur or Lesa
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is