Reykjavíkurborg veitti styrk til túlkaþjónustu SHH
Velferðaráð Reykjavíkur úthlutaði í gær styrkjum. Fanney frá SHH tók
við styrk til túlkaþjónustunnar. Styrkurinn er notaður til að túlka
viðburði sem Reykjavíkurborg stendur fyrir eins og til dæmis
Menningarnótt og þegar jólatréið frá Norðmönnum er tendrað í desember.
Síðan hefur hann líka verið notaður fyrir döff Reykvíkinga í alls konar
túlkun tengdri tómstundum og menningu. SHH hefur sótt um styrk hjá Reykjavíkurborg á hverju ári túlkunar en nú í ár er allt þetta formlegt.
Frétt
Reykjavíkurborgar.