Þú ert hér

Vefsíðan thjodaratkvaedi.is á táknmáli
Vefsíðan thjodaratkvaedi.is hefur verið opnuð í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars um lög nr. 1/2010. Þar eru útskýrð á hlutlausan hátt meginatriði máls sem varða atkvæðagreiðsluna, ástæður hennar og mögulegar afleiðingar.

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið fól Lagastofnun Háskóla Íslands að semja kynningarefni fyrir almenning vegna atkvæðagreiðslunnar og auk vefsíðunnar var gefinn út bæklingur sem var dreift um allt land. Athygli ehf. sá um hönnun og tæknivinnu vegna vefjarins, sem og framsetningu efnis, bæði á vefnum og í bæklingnum.

Vefsíðan thjodaratkvaedi.is er ekki umræðuvettvangur en notendum hennar er vísað á ýmsa vefi stjórnmálahreyfinga, stofnana, hagsmunasamtaka og annarra sem hafa með einum eða öðrum hætti fjallað um Icesave-málið eða einstaka þætti þess. Vefsíðan thjodaratkvaedi.is er aðgengilegur á táknmáli.
Fréttin er á táknmáli

Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Skýrslur or Lesa
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is