Félag heyrnarlausra
Beint í efnisyfirlit
Þú ert hér
Saumastofa Landspítalans hlýtur viðurkenningu Félags heyrnarlausra
Saumastofa Landspítalans hefur fengið viðurkenningu Félags heyrnarlausra sem veitt er fyrirtækjum eða stofnunum sem skara fram úr í viðhorfi og góðu viðmóti við heyrnarlausa. Styttan sem er farandbikar og færist á milli fyrirtækja kallast Múrbrjóturinn.
Laila Margrét Arnþórsdóttir fræðslufulltrúi Félags heyrnarlausra afhenti viðurkenninguna á starfsmannafundi á Tunguhálsi 5. mars 2010. Í umsögn hennar segir: "Saumastofan hefur verið frarmúrskarandi í þessum efnum og yndislega vel tekið á móti heyrnarlausum starfsmanni. Margir vinnustaðir mættu taka saumastofuna sér til fyrirmyndar og eru þær góðu konur sem þar starfa vel að heiðrinum komnar."
Styttan sem saumastofan Landspítalans fékk til varðveislu nefnist "Múrbrjótur" og er farandgripur. Hann var síðast afhentur árið 2001 og þá var það leikskólinn Sólhlíð sem Félagi heyrnarlausra þótti ástæða til þess að veita viðurkenningu. Það var svo fyrst núna sem félagið fann verðugan arftakan í saumastofu Landspítala. Sigurbjörg Hermannsdóttir, starfsmaður á saumastofunni og Sigrún Björg Einarsdóttir, rekstrarstjóri hennar, tóku við Múrbrjótnum fyrir hönd starfsmanna saumastofunnar.
Undirvalmynd
Póstlisti
Senda fyrirspurn
Tilkynningar
Skýrslur
Erlent samstarf
Fundargerðir
Aðalfundir
Starfsmenn
Saga
Lög Félagsins
Stjórn og nefndir
Sjóðir
Styrkja félagið
Veftré
English
Um félagið
Þú ert hér:
Forsíða
Um félagið
Skýrslur
Lesa
Leitarvél
Linkar
Starfsmenn
|
Veftré
|
English
Aðalvalmynd
Forsíða
Um félagið
Starfsemi
Þjónusta
Félagsstarf
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is