Sala vorhappdrættismiða Félags heyrnarlausra hafin
Um þessar mundir stendur Félag heyrnarlausra fyrir sölu happdrættismiða um allt land. Alls eru 50 vinningar í boði, meðals annars eru sjónvörp, fartölvur og myndavélar frá Heimilistæki .
Dregið verður í happdrættinu 18. júní n.k. Hver miði kostar 1.500 kr. Vinningaskrá verður birt á textavarpinu og á heimasíðu Félags heyrnarlausra, www.deaf.is.
Happdrættismiðasala hefur í mörg ár verið ein aðalfjáröflunarleið Félags
heyrnarlausra og er það von okkar að landsmenn taki vel á móti
sölumönnum okkar og styrki starfsemi félagsins með kaupum á
happdrættismiða í vorhappdrætti heyrnarlausra 2010.
- Sýnishorn af happdrættismiða hér.