Styrkur til meistaranema í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands
Kristín Lena Þorvaldsdóttir, meistaranemi í íslenskri málfræði, hefur hlotið viðurkenningu úr Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jóhannessonar. Styrkurinn nemur 200.000 þúsund krónum.
Meistaraverkefni Kristínar Lenu Þorvaldsdóttur, Próform, áttbeyging og hólf: Hugtakanotkun í málfræði táknmáls, felst í samræmingu og endurskoðun á hugtakanotkun í táknmálsfræði. Verkefnið liggur því á mörkum tveggja fræðasviða, táknmálsfræði og íslenskrar málfræði. Hugtök í táknmálsfræði eru mörg hver fengin að láni úr íslenskri málfræði og henta misvel. Önnur eru fengin úr erlendum málum og löguð að íslensku.
Sjá frétt frá Háskóla Íslands
hér.