Þú ert hér

Ennþá er hægt að skrá sig á menningarhátíð heyrnarlausra

Norræn menningarhátíð heyrnarlausra verður haldin í Stokkhólmi dagana 28. júní til 3. júlí.  Ennþá er hægt að skrá sig á menningarhátíðina í síðasta lagi 14. júní.  



Á menningarhátíðinni verður margt gert með svo sem rapp, gjörning, námskeiðum, kaffihúsi, fyrirlestrum, leikhúsi og margt fleira.  

Hvernig væri að taka þátt í námskeiði (e. Workshop) í að rappa á táknmáli með Signmark? Á menningarhátíðinni verður fjöldi námskeiða í boði í dansi, ljósmyndum, skáldskap og miklu meira. Þá verður sýnd leikrit frá Norðurlöndum, svo sem Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

Hvað um að taka þátt í fyrirlestrum um „deafhood“, lög um tungumál, líf finnskra-sænska fólk, aðgengi, Döff sögu, og fullt öðrum áhugaverðu efni! Einnig verða sýnd kvikmyndir, leikhús og fjölleikahús fyrir börn. Æskulýðsklúbbar og önnur starfsemi fyrir ungt fólk. Þá verður kaffihús, opnunarhátíð og lokahóf á menningarhátíðinni.

Ennþá er hægt að skrá sig á menningarhátíðina á heimasíðu menningarhátíðar.  

Heimasíða menningarhátíðar hér.   

Eldri tilkynningar um menningarhátíðina (á íslensku) 

  • 30/04/2010 - Skráning á norrænu menningarhátíðina er hafin!
  • 26/03/2010 - Norræn Menningarhátíð heyrnarlausra í Svíþjóð í sumar
  • 25/01/2010 - Heimasíða Menningarhátíðar döff í Svíþjóð 2010

Verið hjartanlega velkomin á menningarhátíðina!


Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Tilkynningar or Lesa
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is