Alþingiskosningar 2016

24. okt. 2016

Táknmálsfrétt

Alþingiskosningar 29. október 2016

Kosið verður til Alþingis laugardaginn 29. október næstkomandi.

Kosningarétt eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og lögheimili eiga hér á landi. Einnig eru teknir á kjörskrá íslenskir ríkisborgarar sem búa erlendis, hafa náð 18 ára aldri og uppfylla nánar tiltekin skilyrði. Frá 27. september til kjördags munu kjósendur geta kannað á kosningavef innanríkisráðuneytisins, kosning.is, hvar þeir eru á kjörskrá.

Á kosningavefnum eru einnig birtar fréttir og nánari upplýsingar um framkvæmd kosninganna, þar með talið um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, kjörskrá, kjörstaði, framboð o.fl. Eru kjósendur hvattir til að kynna sér þær vel.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar 

Hægt er að greiða atkvæði hjá sýslumönnum og fulltrúum þeirra um allt land og auglýsa þeir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla getur farið fram og á þann hátt á hverjum stað sem venja er þar að birta opinberar auglýsingar. Auk þess má greiða atkvæði á sjúkrahúsum, dvalar- og vistheimilum, í fangelsum og heimahúsum í samráði við kjörstjóra á hverjum stað. 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis fer fram í öllum sendiráðum Íslands og aðalræðisskrifstofum Íslands. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis. Hægt er að sjá lista yfir þá á vef utanríkisráðuneytisins, utanrikisraduneyti.is.

Kjörstaðir á kjördag

Atkvæðagreiðslan fer yfirleitt fram á sömu kjörstöðum og almennt er notast við í kosningum. Sveitarfélög munu auglýsa nánar um kjörstaðina skömmu fyrir kjördag, m.a. hvenær þeir eru opnir, hvar þeir eru, hvernig skipt er í kjördeildir, o.fl.  

Innanríkisráðuneytið hefur látið gera myndbönd til leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og á kjörfundi á íslensku og ensku. Myndböndin eru með texta og eru tenglar á þau á vefnum kosning.is. 

Tekin af kosning.is