• Dr. Þórður Örn í forsíðunni
    Dr. Þórður Örn í forsíðunni

Nýja Döffblaðið

13. feb. 2017

Nýja Döffblaðið kom út nú í febrúar í tilefni dags íslenska táknmálsins og afmælis félagsins. Tekið er viðtal við Dr. Þórð Örn Kristjánsson sem er fyrstur heyrnarlausra á Íslandi til þess að ljúka doktorsprófi. Mörg önnur áhugaverð málefni verða tekin fyrir í blaðinu eins og útrýming íslenska táknmálsins og margt fleira. Þeir félagsmenn og aðrir sem hafa óskað eftir að fá Döffblaðið sent heim verður sent í vikunni en hægt er að nálgast blaðið á rafrænu formi hér eða undir Útgáfa, en þar má einnig nálgast eldri útgáfur Döffblaðsins.