• Merki ÖBÍ

Sumarskóli um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

17. feb. 2017

Sumarskóli um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks dagana 19. - 23. júní 2017 á Írlandi. (Sjá nánari upplýsingar í viðhengi.)

Öryrkjabandalag Íslands mun veita nokkrum félagsmönnum aðildarfélaga bandalagsins styrk til þátttöku í hinum árlega sumarskóla um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) í Galway sem er á vesturströnd Írlands. Skólinn verður að þessu sinni dagana 19. til 23. júní 2017. Er það fjórða árið í röð sem ÖBÍ styrkir fólk til þátttöku.

ÖBÍ hvetur félagsmenn aðildarfélaganna til að sækja um styrk til ferðarinnar. Í umsókn skal koma fram fullt nafn, kennitala, aðildarfélag umsækjanda og stuttur rökstuðningur fyrir umsókn um styrkveitingu. Þeir sem hljóta styrk þurfa að vera Öryrkjabandalaginu innan handar við kynningu á samningnum síðar. Hver umsókn verður skoðuð með tilliti til ofangreindra þátta. 

Umsóknir skulu berast á meðfylgjandi eyðublaði í síðasta lagi 15. mars næstkomandi til móttöku ÖBÍ á netfangið mottaka@obi.is

Nánari upplýsingar veitir Þórný Björk Jakobsdóttir á skrifstofu ÖBÍ á netfanginu thorny@obi.is og í síma 530 6700.