Tilkynning

8. okt. 2015

https://vimeo.com/141774993

Kæru félagsmenn

Stjórn Fh tilkynnir með ánægju að Hafdís Gísladóttir lögfræðingur mun hefja fullt starf hjá Félagi heyrnarlausra frá og með 1.nóvember í 6.mánuði. 

Hafdís hefur sinnt mörgum verkefnum fyrir félagið sem tengjast hagsmuna-,réttinda- og baráttumálum félagsins og félagsmanna. Í skýrslu stjórnar Fh og skýrslu Hafdísar sem birt var á aðalfundi félagsins í vor má sjá að næg eru verkefnin í hagsmuna-, réttinda- og baráttumálum hjá félaginu. 

Er það trú og von stjórnar að Hafdís muni vera félaginu mikill lyftistöng í baráttu félagsins.