Túlkafylgd

1. okt. 2015

Nemendur í táknmálstúlkun við Háskóla Íslands byrja í túlkafylgd nú í október. 

Fram að áramótum munu nemendurnir fylgjast með reyndum túlkum að störfum, en eftir áramót og fram á vor munu þau fá að prófa öðru hvoru. 

Þetta árið eru fjórir nemendur, þar af einn döff.

Við biðjum ykkur um að taka vel á móti túlkanemunum.