Umsókn um styrki

30. ágú. 2017

Menntunarsjóður Félags heyrnarlausra

Stjórn Menntunarsjóðs Félags heyrnarlausra auglýsir eftir umsóknunum styrki úr sjóðnum.

Tilgangur sjóðsins er að stuðla að menntun heyrnarlausra, daufblindra og heyrnarskertra, formlegrar og óformlegrar sem og starfsþjálfunar og aðra endurmenntun. 

Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að viðkomandi sé fullgildur félagsmaður í Félagi heyrnarlausra. Upplýsingar um sjóðinn ásamt umsóknareyðublöðum fást á heimasíðu félagsins.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum ásamt ítarlegum upplýsingum um umsækjendur og væntanlegt nám, ber að senda til stjórnar Menntunarsjóðs Félags heyrnarlausra, Þverholti 14, 105 Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til 30. september 2017. 

Allar nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu styrktarsjóðsins HÉR

Styrktarsjóður Bjargar

Tilgangur sjóðsins er að styrkja táknmálstúlkun eða textun á íslensku menningarefni, hvort heldur er í sjónvarpi, kvikmyndahúsum eða í leikhúsum.

• Rétt til að sækja um styrk hafa framleiðendur og íslenskir rétthafar sjónvarpsefnis, kvikmynda og fræðsluefnis á myndböndum og einnig leikhús.
• Þeir umsækjendur skulu að öllu jöfnu sitja fyrir sem ekki eiga kost á öðrum styrkjum.
• Umsóknum um styrki úr sjóðnum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum frá sjóðstjórn, ásamt ítarlegum upplýsingum um verkefnið og umsækjendur. 

Umsóknarfrestur er til 30. september 2017

Allar nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu styrktarsjóðsins HÉR