Hver er galdurinn?

  • 11.10.2016, 13:00 - 16:30, Grand Hótel, 2.000 kr

Málþing um bataskóla á vegum Geðhjálpar og Reykjavíkurborgar í Gullteigi, Grand Hótel 11. október 2016

Fundarstjóri, Sigríður Arnardóttir.

13.00 – 13.10 Ávarp
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. 

13.10 – 13.20 Hvers vegna bataskóli?
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. 

13.20 – 14.30 Bataskólinn í Nottingham
Helen Brown, skólastjóri bataskólans í Nottingham, fjallar um batahugmyndafræði (recovery model), stofnun og starfsemi bataskólans í Nottingham http://www.nottinghamshirehealthcare.nhs.uk/nottingham-recovery-college

14.30 – 15.00 Sýn nemenda/fræðara
Jafningjafræðari við bataskólann í Nottingham, segir frá reynslu sinni af námi og jafningjafræðslu við bataskólann.

15.00 – 15.25 Kaffi

15.25 – 15.40 Bataskóli á Íslandi
Kristjana Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, og Iðunn Antonsdóttir, skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur, segja frá undirbúningi við stofnun bataskóla á Íslandi.

15:40 – 15.55 Sýn notanda
Linda Dögg Hólm, ráðgjafi Geðhjálpar, reifar sjónarhorn notenda gagnvart bataskóla á Íslandi.            

15.55 – 16.30 Pallborðsumræður
Kári Ragnars frá Klúbbnum Geysi, Edna Lupita  frá Hlutverkasetri, Svava Arnardóttir frá Hugarafli, Halldóra Pálsdóttir frá Vin, Lúðvíg Lárusson frá Geðheilsustöð Breiðholts og María Einisdóttir frá Landspítalanum segja frá batamiðaðri nálgun í starfsemi síns félags/úrræðis/stofnunar og sitja fyrir svörum.

Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið í gegnum www.gedhjalp.is/skraning/radstefna/ eða með því að senda tölvupóst með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda verkefnisstjori@gedhjalp.is. 

Aðgangseyrir kr. 2.000, frítt fyrir félaga í Geðhjálp. Hægt er að skrá sig í Geðhjálp á www.gedhjalp.is