Döff Menningarkvöld
Alþjóðavika Döff 20.-26.september 2021 og Alþjóðadagur táknmála 23.september 2021.
Félag heyrnarlausra býður félagsmönnum og fjölskyldum á Döff Menningarkvöld föstudaginn 24.september í Þverholti 14.
Gastro Truck mun grilla ljúffenga hamborgara og franskar og gos með handa félagsmönnum og fjölskyldum kl 17.45 - 19.15 og ÍFH mun sjá um bjórkvöld og gömul myndefni verða spiluð á skjánum. Salurinn verður opinn eftir föstudagskaffið fyrir þá sem vilja vera áfram eftir föstudagskaffið.
Allir aðrir en félagsmenn eru líka velkomin og geta keypt hamborgarapakkann á 1.500 kr á staðnum.
Sjáumst hress!! Við vonumst til að sjá sem flesta með góða skapið!
Sjá myndband ÍTM hér