• 1 maí ÖBÍ
    1 maí ÖBÍ

1 MAÍ -TAKTU DAGINN FRÁ OG VERTU SÝNILEG/UR MEÐ OKKUR

20. apr. 2018

ÖBI Það skiptir miklu máli að við verðum öll mjög sýnileg í kröfugöngu 1. maí. Kjaramálin hljóta að vera áherslumál okkar allra og í dag er okkar helsta baráttumál að skerðingarnar verði afnumdar um það verður kröfuganga ÖBÍ í ár. 

Ekki nægir að vera óánægður heima hjá sér, við verðum að sýna hve miklu máli þetta skiptir. Þess vegna er það mjög mikilvægt þið ljáið baráttuna krafta ykkar og verið með í henni. 
Afnám skerðinga er aðeins varða á leiðinni til meiri kjarabóta.  Við erum að leggja áherslu á ímynd og ásýnd örorkulífeyrisþega, fatlaðs fólks, sem almennra þátttakenda í samfélaginu.

Félagsmenn, jafnt sem fjölskylda og vinir. Allir velkomnir.
Stóra málið er að ná góðum hópi saman, að við verðum vel sýnileg og að okkar rödd heyrist hátt og vel.
Endilega skráðu þig núna á netfangið 1mai@obi.is  sendu inn nafn, síma og netfang

Þegar nær dregur fá þátttakendur, afhenta regnslá, en allir sem taka þátt í göngu og samstöðu á Lækjartorgi fá regnslá til að vera í þennan dag, þannig verðum við enn meira áberandi. Og það er það sem málið snýst um núna!

Verum stolt og verum sýnileg 1. maí. 
Tökum pláss í samfélaginu!

SJÁUMST☺

Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Formaður Öryrkjabandalags Íslands