Aðalfundur Félags heyrnarlausra 2014

Undirtitill

18. maí 2014

Aðalfundur Félags heyrnarlausra verður haldinn laugardaginn 24. maí næstkomandi í félagsheimili Félags heyrnarlausra að Þverholti 14, 105 Rvk. Fundurinn hefst kl. 10:00 stundvíslega og stendur til kl. 16.00.

Dagskrá fundarins samkvæmt lögum Félags heyrnarlausra er eftirfarandi:

Hefðbundin aðalfundarstörf

a)  Formaður félagsins setur fundinn

b)  Kosning fundarstjóra

c)  Kosning ritara

d) Ritari les fundargerð síðasta aðalfundar

e) Endurskoðaðir reikningar fyrir síðasta almanaksár lagðir fram til samþykktar

f) Formaður les skýrslu stjórnar

g) Umræður um skýrslu stjórnar

h)  Bornar upp tillögur er fyrir fundinn hafa verið lagðar

i)   Kosning:

  • kosning eins aðalstjórnarmanns til tveggja ára
  • kosning varaformanns til tveggja ára
  • kosning tveggja varastjórnarmanna til tveggja ára   

j) Önnur mál

Tillögur um lagabreytingar eða framsögu á fundinum þurfa að berast stjórn Félags heyrnarlausra í síðasta lagi viku fyrir auglýstan aðalfund eða 16. maí 2011.

Samkvæmt samþykktum lögum síðasta aðalfundar 8. gr. liður b) skal framboðum til stjórnar skilað á skrifstofu eigi síðar en 14 dögum fyrir boðaðan aðalfund.        

Léttar veitingar í boði

Stjórnin