ALÞJÓÐLEGUR BARÁTTUDAGUR FÓLKS MEÐ SAMÞÆTTA SJÓN- OG HEYRNARSKERÐINGU

27.JÚNÍ 2014 

23. jún. 2014

 

27. júní er alþjóðlegur baráttudagur fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Þann dag fæddist Helen Keller árið 1880. Félagsmenn í Fjólu halda sérstaklega upp á daginn og bjóða alla velkomna til að taka þátt.

 

Dagskráin hefst klukkan 13:00 með hjálpartækjasýningu þar sem við fáum að sjá það nýjasta sem í boði er.

 

Klukkan 15:00 verða fluttir áhugaverðir fyrirlestrar um þjónustu sem fólki með samþætta sjón- og heyrnaskerðingu stendur til boða hjá ríki og sveitarfélögum.

 

Dagskráin fer fram í Hamrahlíð 17, 2. hæð og vonumst við til þess að sjá sem flesta.

 

Eftir dagskrána verða bornar fram kaffiveitingar.

 

Fyrirlestrar eru rit- og táknmálstúlkaðir

 

 

 

Kær kveðja

 

Fjóla, félag fólks með samþætta sjón- og heyrnaskerðingu