Frétt ÖBÍ

Undirtitill

28. maí 2015

 

Ályktun aðalstjórnar ÖBÍ vegna kjaraviðræðna.

 

Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) tekur undir kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar um hækkun lágmarkslauna í 300.000 kr. innan þriggja ára. Framfærsluviðmið almannatrygginga er undir 200.000 kr. og undir lágmarkslaunum fyrir dagvinnu. Hópur lífeyrisþega hefur búið við mjög bág kjör árum og áratugum saman vegna mjög lágra tekna. Lífeyrir og lágmarkslaun duga ekki fyrir lágmarksframfærslu. Því er óhjákvæmilegt að lagfæra kjör þessara hópa.

 

Lögum samkvæmt á lífeyrir almannatrygginga að breytast árlega í takt við launaþróun en þó þannig að hann hækki ekki minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Það hefur ekki verið raunin síðustu ár. Allt frá árinu 2009 hefur lífeyrir hvorki náð að halda í við þróun lægstu launa, verðlags- né launavísitölu.

 

Stjórnvöld hafa lýst því yfir að hagur ríkisins hafi vænkast. Skorað er á stjórnvöld að efna gefin loforð um að leiðrétta kjaragliðnun sem lífeyrisþegar hafa orðið fyrir á síðustu árum.

 

Aðalstjórn ÖBÍ gerir þá kröfu að lífeyrir hækki að lágmarki í samræmi við krónutöluhækkun lægstu launa í yfirstandandi kjarasamningagerð.

 

Reykjavík 27. maí 2015

 

Aðalstjórn ÖBÍ

 

Nánari upplýsingar veitir Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, í gsm. 663 9800