Leiðréttingin

Undirtitill

21. maí 2014

 

Kæru félagsmenn.

 

Ríkisskattstjóri hefur birt heimasíðu þar sem eigendur verðtryggðra fasteignalána geta sótt um leiðréttingu fyrir tímabilið 2009 og 2010. Ítarlegar upplýsingar sem eru textaðar og umsókn um leiðréttingu er að finna á heimasíðunni  www.leidretting.is. Félag heyrnarlausra er í sambandi við Ríkisskattstjóra um að fá myndbandskynninguna á síðunni yfir á táknmál. Ef þið óskið aðstoðar er ykkur velkomið að leita til Daða Hreinssonar, framkvæmdastjóra sem mun aðstoða ykkur með að sækja um og veita frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur til að sækja um leiðréttingu er til 1 september næstkomandi. Þeir sem óska aðstoðar eru vinsamlegast beðnir um að bóka tíma á  dadi@deaf.is og hafa tilbúin rafræn skilríki eða veflykil svo hægt er að komast inn á síðu ykkar og sækja um.

 

 

 

leidretting.is

 

 

 

Virðingarfyllst,

 

Félag heyrnarlausra