Nýr starfsmaður hjá Félagi heyrnarlausra

4. des. 2014

Stjórn Félags heyrnarlausra býður Hafdísi Gísladóttur lögfræðing  velkomna til starfa hjá félaginu. Hafdís mun koma tímabundið til starfa, frá og með janúar og verður hún í 50% starfshlutfalli í 3 mánuði.

Hafdís mun vinna náið með formanni og stjórn félagsins að baráttumálum félagsins. 

Í stefnumótun félagsins var ljóst að meiri þunga þyrfti að setja í baráttumálin, það von stjórnar að félagsmenn taki þessu vel.  

Eins og flestir þekkja til þá hefur Hafdís síðustu misseri unnið að lögfræðilegum málum fyrir félagið og félagsmenn, hefur hún mikla reynslu af baráttu- og réttindamálum félagsins og félagsmanna þess.

Hún mun áfram sinna málum fyrir félagsgmenn og er velkomið að bóka viðtal hjá henni. Hafdís mun vera með viðveru í félaginu sem verður auglýst þegar nær dregur.