NÝR VIÐBURÐARSTJÓRI FH

Undirtitill

3. mar. 2015

 

Félag heyrnarlausra býður nýjan viðburðastjóra velkomin til starfa. Hanna Lára Ólafsdóttir var ráðin í starf viðburðarstjóra og mun gegna 20% starfi við að skipuleggja ýmsa viðburði á vegum félagsins í samstarfi við stjórn þess, þar að auki mun hún vera deildum félagsins innan handar og efla félagslíf félagsins.

 

Þess má geta að hún víkur úr starfi varamanns í stjórn Fh vegna nýja starfsins.

 

Best er að hafa samband við Hönnu Láru á netfangið hanna@deaf.is eða á facebooksíðu  viðburðarstjóra.