Samstarfssamningur við Já.is og símaskráin

5. des. 2014

Fyrirtækið Já.is og símaskráin og Félag heyrnarlausra hafa gert með sér samstarfssamning þess efnis að megin þema símaskrárinnar árið 2015 verði tileinkað döff og táknmáli. 

Birtar verða í símaskránni um 10 blaðsíður, þar sem fram koma, ýmsar upplýsingar um döff, táknmál og efni tengdu táknmálskennslu, táknmálsstafrófi og fleiru.