TINNA TÁKNMÁLSÁLFUR HLÝTUR STYRK

Undirtitill

26. jún. 2014

EFLA  hefur úthlutað í fjórða sinn úr Samfélagssjóði sínum. Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins, en markmið sjóðsins er að láta gott af sér leiða í samfélaginu og veita styrki til verðugra verkefna. Samtals bárust 93 umsóknir að þessu sinni og hlutu sjö verkefni styrki. Félag heyrnarlausra fékk styrk vegna framleiðslu á þáttunum um Tinnu Táknmálsálf. Félag heyrnarlausra þakkar kærlega fyrir sig.