• Umsókn um styrki

Umsókn um styrki

24. ágú. 2018

Menntunarsjóður Félags heyrnarlausra
Stjórn Menntunarsjóðs Félags heyrnarlausra auglýsir eftir umsóknunum styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að menntun heyrnarlausra, daufblindra og heyrnarskertra, formlegrar og óformlegrar sem og starfsþjálfunar.

Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að viðkomandi sé fullgildur félagsmaður í Félagi heyrnarlausra. Upplýsingar um sjóðinn ásamt umsóknareyðublöðum fást á heimasíðu félagsins. Umsóknir um styrki úr sjóðnum ásamt ítarlegum upplýsingum um umsækjendur og væntanlegt nám, ber að senda til stjórnar Menntunarsjóðs Félags heyrnarlausra, Þverholti 14, 105 Reykjavík eða á deaf@deaf.is
Umsóknarfrestur er til 30 september 2018.
Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru að finna á heimasíðu styrktarsjóðsins HÉR

Styrktarsjóður Bjargar Símonardóttur
Tilgangur sjóðsins er að styrkja táknmálstúlkun eða textun á íslensku menningarefni, hvort heldur er í sjónvarpi, kvikmyndahúsum eða í leikhúsum.

• Rétt til að sækja um styrk hafa framleiðendur og íslenskir rétthafar sjónvarpsefnis,  kvikmynda og fræðsluefnis á myndböndum og einnig leikhús.
• Þeir umsækjendur skulu að öllu jöfnu sitja fyrir sem ekki eiga kost á öðrum styrkjum.
• Umsóknum um styrki úr sjóðnum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum frá sjóðstjórn,  ásamt ítarlegum upplýsingum um verkefnið og umsækjendur. 
Umsóknarfrestur er til 30 september 2018.
Allar nánari upplýsingar um sjóðinn og umsóknareyðublöð eru að finna á heimasíðu styrktarsjóðsins HÉR og skal skilað til:

Félag heyrnarlausra, styrktarsjóður Bjargar Símonardóttur, Þverholti 14, 105 Reykjavík eða á deaf@deaf.is