Viðtalstímar hjá Hafdísi Gísladóttur

20. jan. 2015

Sælir félagsmenn Félags heyrnarlausra. 

Hafdís Gísladóttir hefur hafið störf hjá félaginu og mun sinna því til apríl mánaðar. Hún hefur mikla þekkingu á hagsmuna- og baráttumálum félagsins. Félagsmenn eru velkomnir að hafa samband við hana um ýmis mál. 

Má nefna til dæmis ef félagsmaður upplifir að brotið sé á réttindum hans, eða hann fái ekki þá þjónustu sem hann á rétt á, eða fær bréf t.d frá TR. Hafdís er til viðtals alla föstudaga kl.12-16 hér í Félagi heyrnarlausra, ef þessi tími hentar ykkur velkomið að hafa samband við hana og finna tíma sem hentar ykkur. Netfang hafdisg@simnet.is og SMS 896 3445 Vonandi geta félagsmenn nýtt sér þessa þjónustu sem er okkur mikilvæg í baráttu okkar.