Dagur íslenska táknmálsins

  • 11.2.2017, Félag heyrnarlausra

Hér er dagskráin fyrir dag íslenska táknmálsins 11. febrúar 2017 með fyrirvara með breytingum.

Dagur íslenska táknmálsins 11. febrúar 2017 verður haldinn í Bæjarbíó í Hafnarfirði, Strandgötu 6. 

Húsið opnar kl. 13:30. Dagskráin hefst kl. 14:00 og lýkur kl. 15:00. Dagskráin fer eingöngu fram á hvíta tjaldinu. Að bíósýningu lokinni er gestum velkomið að þiggja léttar veitinagar í boði Félags heyrnarlausra og eiga góðar stundir.

Aðgengi fyrir fatlaða á dagskrá ÍTM í Bæjarbíó þann 11. Febrúar næstkomandi er mjög gott.

Á dagskránni verður sýnd bíómynd á táknmáli og með íslenskan texta. Vanti einhvern túlk þess utan á dagskránna er viðkomandi beðin um að hafa samband við Daða Hreinsson framkvæmdastjóra á dadi@deaf.is við fyrsta tækifæri.

Táknmálsviðmót