Döffmót 2017
Að venju verður fjör og gaman á Döffmótinu, Döffmótssöngurinn á föstudagskvöldi og allir koma sér fyrir. Á laugardeginum er fótbolti, snúsnú, kubbspil, ratleikur, sundferð, sameiginlegt kvöldgrill, kvöldskemtun. Nánari dagskrá kemur þegar nær dregur að mótinu.
Við hvetjum fólk sem treystir sér ekki að sofa á grasinu að leita sér gistingu tímanlega í nágrenni við Þjórsárver, margir gistimöguleikar eru þarna t.d. Hótel Vatnsholt.
Félagsheimili verður ekki í boði. Staðhaldarar munu rukka um gistingu á tjaldstæðinu samkvæmt verðskránni þeirra.
Verð 2017
- Fullorðnir 1.200 kr
- Börn 600 kr
- Rafmagn 800 kr
- Þvottavél 300 kr
Ef einhverjir hafa brennandi áhuga á að vera í Döffmótsnefnd þá er velkomið að hafa samband við Hönnu Láru í tölvupósti hannalara85@gmail.com eða Heiðdísi í tölvupósti heiddis@deaf.is.
Upplýsingar um Þjórsárver og tjaldsvæði á Þjórsárveri.