Þriðja alheimsráðstefnan (1/4) - Þáttur 52
Þriðja alheimsráðstefnan (1/4)
Alþjóðasamtök heyrnarlausra (WFD) vill tryggja öllum döff í hverju landi fyrir sig þann rétt að nota táknmál sem móðurmál þeirra í daglegum athöfnum, til varðveislu og þróun menningar döff. WFD skipulagði alheimsráðstefnu undir þemanu, Full þátttaka með táknmáli, sem var haldin þann 8-10 nóvember í Búdapest, Ungverjalandi.
Á ráðstefnunni var fjallað um allskonar þemu:
- Tvítyngikennsla
- Táknmál í fjölskyldum
- Döff starfsmenn á atvinnumarkaði
- Samskipti án hindrana
- Ný IT bylting
- Þátttaka í ákvarðanatöku
Félag heyrnarlausra sendi 4 fulltrúa til Búdapest að afla upplýsinga um alls konar efni sem gæti nýst félaginu í framtíðinni.