• Sigurveig Víðisdóttir
    Sigurveig Víðisdóttir, hjúkrunarfræðingur, MHA

Táknmál – Er það ekki málið?

Höfundur: Sigurveig Víðisdóttir

1. okt. 2016

Íslenskt táknmál hefur verið viðurkennt sem fyrsta mál heyrnarlausra á Íslandi og ekki þarf að efast um gildi þess að hefja máltöku heyrnarlausra eins fljótt og hægt er, rétt eins og hjá heyrandi börnum. Máltaka og að ná málþekkingu krefst örvunar og fjölbreytileika og því er mikilvægt að máltaka fari fram í málumhverfi sem uppalandi eða kennari eru leiknir í, hvort sem það er talmál eða táknmál. Þeir sem nota táknmál nota síðan hið skrifaða mál sem sitt annað mál, lesa, skrifa, læra á því, rétt eins og við sem erum heyrandi, en til þess verða þeir að öðlast málþekkingu og færni fyrst, rétt eins og þeir sem heyra.

Fullgilding Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks felur í sér ákvæði um aðgengi og jöfn tækifæri. Fram undan liggur mikil vinna við stefnumótun og hvernig framfylgja skuli megininntaki hans. Þetta er stórt skref fyrir heyrnarlausa sem og aðra og mun styðja þá í eins einfaldri og sanngjarnri baráttu og því að hefja máltöku sem ungbörn, ná málskilningi og að geta beitt málinu við samskipti í starfi og leik. Þessu fylgir augljóslega þjóðhagslegur ávinningur. Er þetta ekki málið spyr ég?

Úrvalsnemendur
Hillary Clinton fjallaði nýlega um það í ræðu sem hún hélt í Orlando að hún ætlaði sem forseti að gera fatlaða sýnilegri og stuðla að frekari þátttöku þeirra í bandarísku samfélagi. Hún benti sérstaklega á Leuh Katz-Hernandes sem starfar sem móttökuritari Barack Obama í Hvíta húsinu. Leah gekk í Maryland School for the deaf (MSD) í Fredrick í Maryland-ríki ásamt dóttur minni. Nemendur í MSD fengu menntun sína í táknmálsumhverfi í skóla sem fór eftir námskrá Fredrick-sýslu. Nemendur og kennarar voru jafn víg á táknmáli og því fór sem fór, þetta voru úrvalsnemendur sem síðar fóru í háskóla og eru nú að skila sér í störf úti í samfélaginu.

Í sama skóla stundaði Nyle Di­Marco nám. Hann tók fyrir nokkrum árum þátt í módelsamkeppni sem hann vann og síðan í keppninni Dancing with the stars sem hann einnig sigraði í, en þessi þáttur er vinsæll á sjónvarpsstöðinni ABC. Nyle hefur í kjölfar velgengni sinnar stofnað sjóð, hvers helsta markmið er að stuðla að því að heyrnarlaus börn geti hafið máltöku frá fyrstu tíð og byggja upp sjálfsímynd heyrnarlausra. Eigum við ekki bara að bretta upp ermarnar og henda okkur í verkefnið sem stuðlar að því að Samningi Sameinuðu þjóðanna verði fylgt eftir, fötluðum og ófötluðum til ævarandi framdráttar?

Ísland er fjölmenningarsamfélag og er það til hins betra. Stuðlum að því að styrkja okkar góða samfélag með því að viðurkenna þá fjölbreytni sem við njótum. Það er málið. 

Þessi grein birtist í Fréttablaðinu 1. október 2016