• foss logmenn

Afsláttur til félagsmanna af lögfræðikostnaði

5. nóv. 2019

video Foss lögmenn sinnir lögfræðilegum verkefnum fyrir stjórn Félags heyrnarlausra og hagsmunagæslu félagsins í þeim margvíslegu baráttumálum sem það heyir. Félagsmönnum stendur til boða lögmannsþjónusta frá Foss lögmönnum á sömu kjörum, en veittur er fastur afsláttur frá gjaldskrá lögmannsstofunnar eða 25%. Þjónustan sem í boði er fyrir félagsmenn er á flestum þeim sviðum sem félagsmenn geta þurft á lögmanni að halda, s.s. vegna fjölskyldu- og erfðamála, skuldamála, fasteignamála og sakamála þegar þörf er á réttargæslu­manni eða verjanda. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni lögmannsstofunnar www.fosslogmenn.is. Til að fá frekari upplýsingar um þjónustuna er ykkur velkomið að hafa samband og senda tölvupóst á netfangið karolina@fosslogmenn.is.