Betri aðgengi að kvöldfréttum RÚV

20. feb. 2026

Fréttir með táknmálstúlkun – mikilvægar upplýsingar frá RÚV

RÚV hefur fengið ábendingar um að íþróttadagskrá hafi riðlað útsendingum frétta með táknmálstúlkun það sem af er ári. Við skiljum vel þá óánægju sem það hefur valdið.

Í janúar voru gerðar breytingar á RÚV appinu og á ruv.is til að bæta aðgengi að beinu streymi.

Hvað þýðir þetta?

Nú er alltaf hægt að horfa á fréttir með táknmálstúlkun klukkan 19:00

  • í RÚV appinu

  • á ruvis undir spilarinn

  • á ruv.is undir „Í loftinu“ 

Þetta á einnig við ef íþróttaviðburðir raska útsendingu á RÚV2.

Áður var aðeins hægt að nálgast beint streymi á ruv.is, en nú er það einnig aðgengilegt í appinu. Fleiri rásir hafa líka verið bættar við í spilarann. 

RÚV telur að með þessum breytingum hafi þjónustan verið bætt og að aðgengi að táknmálstúlkuðum fréttum sé nú tryggt á sama tíma á netinu, jafnvel þó dagskrá raskist í línulegri útsendingu.

ÍTM um aðgengi að kvöldfréttum RÚV