Bílabíó á RIFF við reiðhöllina í Víðidal!

18. sep. 2024

Kveikið á vélunum og festið öryggisbeltin - það er kominn tími á Bílabíó!...  Komdu á bíl eða hesti, hjóli eða stól - og syngdu með og njóttu í næði!


Hið vinsæla bílabíó RIFF (Reykjavík International Film Festival) snýr aftur laugardaginn 21. september - og enn sem fyrr er það eitt það stærsta sem haldið hefur verið hér á landi, en síðast var það í boði haustið 2021.
Matarvagnar og popp og gos á staðnum til að gera upplifunina enn betri.


Fullt verð fyrir hvern bíl 4990 krónur, en 3990 fyrir fatlað fólk.


Sýndar verða fjórar sívinsælar bíómyndir að þessu sinni - og fyrir þá sem eru í bílum er einfalt að tengja útvarpið við rétta rás - og njóta svo bara í botn:


- 15:30 - BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA                             106 MÍN

Sænska myndin sem sló í gegn 1977 í leikstjórn Olle Hellblom og fjallar um viðureign bræðranna Karls og Jónatans við Þengil grimma og svartklæddu riddarana hans.

- 18:00 - MEÐ ALLT Á HREINU                                   99 MÍN      

Sú ógleymanlega söngvamynd Ágústs Guðmundssonar frá 1982 þar sem liðsmenn Stuðmanna og Grýlanna fara á kostum í keppni tveggja hljómsveita sem fara um landið.

- 20:15 DRAUGASAGA                                      64 MÍN

Kynngimögnuð ræma Viðars Víkingssonar frá 1985 um læknanema sem tekur að sér næturvörslu í sjónvarpshúsi og kryddar þar sögur um meinta reimleika á staðnum.

- 21:30 TILBURY                                               53 MÍN

Önnur mynd úr fórum Viðars frá 1987 um sveitastrák á stríðsárunum sem horfir á eftir ástinni sinni í hendur hermanns, sem er kannski, þegar allt kemur til alls, bara tilberi.
Leikstjóri þessara tveggja mynda, Viðar Víkingsson og aðalleikari þeirra; Kristján Franklín, mæta í Víðidalinn og kynna myndirnar og setja sögusviðið í samhengi.


TAKTU FRÁ LAUGARDAGINN 21. SEPTEMBER Í VÍÐIDAL
Bílabíó RIFF gerir bíóupplifunina aðgengilega fyrir alla. Íslenskur texti verður við hverja mynd og sérmerkt stæði fremst við skjáinn fyrir bíógesti með fötlun sem fá 20% afslátt.


Sjálf kvikmyndahátíðin hefst svo í Háskólabíó 26. september og stendur til 6. október.