Deaf Women European Forum
Tækifæri fyrir tvo kvenfélagsmenn til að taka þátt í Deaf Women European Forum í Róm
Félag heyrnarlausra hefur fengið boð frá EUD um að tilnefna tvo fulltrúa á 4th Deaf Women European Forum (DWEF) sem verður haldið í Róm 26.–27. nóvember 2026.
Stjórn Félags heyrnarlausra hefur samþykkt að bjóða tveimur kvenfélagsmönnum að taka þátt fyrir hönd félagsins og greiða flug þeirra til og frá Róm.
Deaf Women European Forum er ætlað döff konum frá Evrópu og er markmiðið að efla samstarf döff kvenna, tengslamyndun og þátttöku þeirra innan stofnana og samfélagsins.
Félag heyrnarlausra greiðir:
- Flug til og frá Róm fyrir tvo fulltrúa. Félagið sér um eða samþykkir flugbókun og miðað verður við hagkvæman ferðakost.
Skipuleggjendur í Róm greiða:
- Gistingu eina nótt, 26.–27. nóvember
- Mat meðan á ráðstefnunni stendur
- Þátttökugjald á Foruminu 26.–27. nóvember
Þátttakendur þurfa helst að vera komnir til Rómar fyrir kl. 12:00 þann 26. nóvember.
Þann 28. nóvember verður einnig opin ráðstefna um morguninn og Women's Festival síðdegis. Ef fulltrúi vill dvelja lengur í Róm og taka þátt þann dag greiðir hann sjálfur fyrir aukanætur, þátttökugjald og annan kostnað sem því fylgir.
Skráningarfrestur hjá EUD er 3. október, þannig að við þurfum að hafa hraðar hendur.
Ef þú hefur áhuga á að fara sem fulltrúi Félags heyrnarlausra, hafðu samband við Heiðdísi heiddis@deaf.is fyrir laugardaginn 3. október og segðu stuttlega frá því hvers vegna þú hefur áhuga á að taka þátt.
Ef fleiri en tvær sækja um mun Félag heyrnarlausra velja tvo fulltrúa.

