FYRIRLESTRARÖÐ

SAMSKIPTAMIÐSTÖÐVAR HEYRNARLAUSRA OG HEYRNARSKERTRA HAUSTÖNN 2014

16. okt. 0014

 

Hádegisfyrirlestur verður þann 20. október kl. 12:15-12:45 á Shh, Grensávegi 9, Reykjavík.

 

Heiti fyrirlesturs: Valdefling heyrnarlausra

 

Fyrirlesari: Iðunn Ása Óladóttir

 

Vinnustaður: Shh

 

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna áhrif valdeflingar heyrnarlausra einstaklinga (döff) sem byggir á vettvangsrannsókn í Namibíu sem gerð var í september og október árið 2012 í gegnum samskiptamiðstöð heyrnarlausa (CCDS) í Windhoek. Hugtakið valdefling hefur verið áberandi innan þróunarfræðinnar síðastliðna áratugi þar sem áhersla er á þátttöku heimamanna í þróunarverkefnum. Litið er á einstaklinga sem þátttakendur í framþróun eigin samfélags og áhersla er lögð á sjálfstæða ákvarðanatöku þeirra. Rannsóknin beinir spjótum sínum að sérstöðu samfélags döff og aðgengi þeirra að samfélaginu. Áherslan var að hluta til á þróunarverkefni Þróunarsamvinnustofnunnnar Íslands (ÞSSÍ), frá árunum 2006-2010 í Namibíu. Rannsóknin fór fram með þátttökuathugun og eigindlegri aðferð sem byggði á viðtölum, samtölum og samskiptum við hóp þátttakenda, bæði heyrnarlausa og heyrandi.

 

Niðurstöðurnar benda til að þrátt miklar framfarir á sviði heyrnarlausra í Namibíu eru heyrnarlausir enn útilokaðir frá menntun að miklu leyti. Þáttakendur lögðu mikla áherslu á gildi táknmáls fyrir aðgengi heyrnarlausra að menntakerfinu og samfélaginu í heild en menntakerfið er ekki í stakk búið til að koma til móts við þarfir heyrnarlausra og skortur á túlkaþjónustu er enn mikil hindrun. Niðurstöður benda til þess að þrátt fyrir að einstaklingar innan sviðs er varða heyrnarlausa leggi sitt af mörkum er enn skortur á vilja innan stjórnkerfisins til að veita undanþágur innan menntakerfisins og leggja til kostnað í túlkaþjónustu. Niðurstöður gefa einnig til kynna að valdefling sé mikilvægt hugtak fyrir þróunarverkefni er varða heyrnarlaust fólk í þróunarlöndunum og geta leitt til valdeflingar heyrnarlausra einstaklinga til langs tíma.