Hausthappdrættissala 2025 hafin

1. okt. 2025

Hausthappdrættissala Félags heyrnarlausra er hafin og munu heyrnarlausir sölumenn á vegum félagsins ganga í hús og bjóða hausthappdrættismiða til sölu. Sölumenn okkar gæta fyllsta kurteisins auk þess að virða tímamörk sölu í heimahús en ekki er mælst til að selt sé eftir kl. 21.30 á kvöldin. Við þökkum góðar móttökur við þessum mikilvæga fjáröflunarlið í starfsemi Félags heyrnarlausra.

Hausthappdraetti-2025