Hlutastarf

13. jún. 2025

Döff 55+

Félag heyrnarlausra leitar að ábyrgðarmiklum og jákvæðum einstaklingi í um 30% hlutastarf til að sinna málefnum eldri döff einstaklinga.

Helstu verkefni fela í sér:  

  • Að veita stuðning og liðveislu við eldri döff einstaklinga, bæði á Mörkinni og í heimsóknum heim til þeirra eftir þörfum. 
  • Að vera tengiliður milli þjónustuaðila og eldri döff einstaklinga, einkum þegar óskað er eftir aðstoð við að koma á nauðsynlegri þjónustu.

Hæfniskröfur:  

  • Táknmálskunnátta er skilyrði. 
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og vilji til að vinna náið með fólki.
  • Heiðarleiki, jákvæðni og þjónustulund.
  • Aðgangur að eigin bíl.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu.

Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2025. Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið: dadi@deaf.is
Öllum umsækjendum verður svarað.