• Merki Félags heyrnarlausra

Menntunar-, Bjargar- og Döffsjóðir eru nú opnaðir!

30. ágú. 2023

Menntunarsjóður

Stjórn Menntunarsjóðs Félags heyrnarlausra auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að menntun heyrnarlausra,
daufblindra og heyrnarskertra, formlegrar og óformlegrar sem
og starfsþjálfunar og aðra endurmenntun.
Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að viðkomandi sé fullgildur
félagsmaður í Félagi heyrnarlausra.
Upplýsingar um sjóðinn ásamt umsóknareyðublöðum er að finna á
heimasíðu félagsins: Menntunarsjóður

Umsóknir um styrki úr sjóðnum ásamt ítarlegum upplýsingum
um umsækjendur og væntanlegt nám sendist til:

Félag heyrnarlausra
bt/ stjórnar menntunarsjóðs
Þverholti 14,
105 Reykjavík
eða á netfangið deaf@deaf.is

Styrktarsjóður Bjargar Símonardóttur

Tilgangur sjóðsins er að styrkja táknmálstúlkun eða textun á íslensku menningarefni, hvort heldur er í sjónvarpi, kvikmyndahúsum eða í leikhúsum.

• Rétt til að sækja um styrk hafa framleiðendur og íslenskir rétthafar sjónvarpsefnis, kvikmynda og fræðsluefnis á myndböndum og einnig leikhús.

• Framleiðendur/sýnendur menningarefnis á táknmáli hvort sem er á sviði, upptöku eða öðrum opinberum vettvangi.

• Framleiðslu á döff menningartengdu efni í öllu mögulegu formi.

• Þeir umsækjendur skulu að öllu jöfnu sitja fyrir sem ekki eiga kost á öðrum styrkjum.

• Umsóknum um styrki úr sjóðnum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum frá sjóðstjórn, ásamt ítarlegum upplýsingum um verkefnið og umsækjendur.

Allar nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu styrktarsjóðsins: Styrktarsjóður Bjargar Símonardóttur

Félag heyrnarlausra
bt/ stjórnar Styrktarsjóðs Bjargar Símonardóttur,
Þverholti 14,
105 Reykjavík
eða á netfangið deaf@deaf.is

Styrktarsjóður Döff

Stjórn Félags heyrnarlausra auglýsir eftir umsóknumum styrki úr styrktarsjóði döff fyrir vorið 2023.

Tilgangur Styrktarsjóðs Döff er að efla þekkingu á táknmálinu og hagsmunum döff með því að styrkja þátttöku á döff menningarviðburðum, skipulögðum íþróttaviðburðum, fyrirlestrum, ráðstefnum, æskulýðsmótum, mótum aldraðra og öðrum viðburðum er efla menningu og samskipti heyrnarlausra og kunna að nýtast einstaklingum eða félaginu í starfi. Til viðbótar því veitir sjóðurinn sumarhúsastyrki Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að viðkomandi sé fullgildur félagsmaður í Félagi heyrnarlausra.

Upplýsingar um sjóðinn er að finna á

heimasíðu félagsins:

http://www.deaf.is/radgjofogtjonusta/styrkir/doffsjodur

Umsóknir um styrki úr sjóðnum ásamt kvittunum fyrir umsókn um sendist til:

Styrktarsjóður Döff

Félag heyrnarlausra,

Þverholti 14,

105 Reykjavík

eða á deaf@deaf.is

 

Umsóknarfrestur er til 1. október 2023.