Styrktarsjóðir

1. sep. 2026

Nú er opið fyrir umsóknir í þrjá styrktarsjóði. Umsóknarfrestur í alla sjóðina er til 1. október 2026.

Menntunarsjóður Félags heyrnarlausra
Sjóðurinn styrkir formlega og óformlega menntun, starfsþjálfun og endurmenntun heyrnarlausra, daufblindra og heyrnarskertra. Umsækjandi þarf að vera fullgildur félagsmaður í Félagi heyrnarlausra.

Styrktarsjóður Döff
Sjóðurinn styrkir meðal annars þátttöku í döff menningarviðburðum, íþróttaviðburðum, fyrirlestrum, ráðstefnum, æskulýðsmótum og öðrum viðburðum sem efla döff menningu, þekkingu og samskipti. Sjóðurinn veitir einnig sumarhúsastyrki. Umsækjandi þarf að vera fullgildur félagsmaður í Félagi heyrnarlausra.

Styrktarsjóður Bjargar Símonardóttur
Sjóðurinn styrkir meðal annars táknmálstúlkun og textun á íslensku menningarefni, auk gerðar menningar-, lista- og skemmtiefnis á íslensku táknmáli.

Nánari upplýsingar um sjóðina, skilyrði og umsóknir má finna hér:
https://www.deaf.is/radgjofogtjonusta/styrkir/

Umsóknarfrestur er til 1. október 2026.

Hvetjum áhugasömum til að kynna sér sjóðina og sækja um!Styrktarsjodir_haust_2026