Sumarlokun
Skrifstofa Félags heyrnarlausra verður lokuð vegna sumarleyfa frá 29. júní til og með 14. ágúst.
Ef erindið varðar pöntun á almenna táknmálstúlkun bendum við á að hafa samband við:
- Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra: www.shh.is
- Túlkun & Tal: www.tulkunogtal.is
Ef erindið er mjög brýnt er hægt að hafa samband við framkvæmdastjóra Félags heyrnarlausra, Daða Hreinsson, á netfangið dadi@deaf.is.
Vinningstölur happdrættis Félags heyrnarlausra má finna á heimasíðu félagsins:
https://www.deaf.is/umfelagid/happdraetti/
Í tilefni af norrænni menningarhátíð heyrnarlausra eru einnig til sölu fallegir pennar til styrktar hátíðinni. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu og samfélagsmiðlum Félags heyrnarlausra.

